Meirihluti andvígur göngugötum allt árið

Helstu ástæður þess að rekstraraðilar voru hlynntir göngugötum allt árið …
Helstu ástæður þess að rekstraraðilar voru hlynntir göngugötum allt árið voru meira mannlíf, skemmtilegri stemning og minni mengun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tæplega helmingur rekstraraðila í miðborg Reykjavíkur er mjög andvígur göngugötum allt árið og 62% eru þeim ýmist mjög eða frekar andvíg, samkvæmt könnun sem Zenter framkvæmdi fyrir Miðborgina okkar í maímánuði.

29,9% rekstraraðila eru mjög eða frekar hlynnt göngugötum í miðborg Reykjavíkur allt árið, en alls bárust svör frá 191 rekstraraðila.

Rekstraraðilar hótela og gististaða voru líklegastir til að vera hlynntir göngugötum allt árið, eða 75%, en rekstraraðilar fata- og skóverslana því andvígastir, 66%.

Helstu ástæður þess að rekstraraðilar voru hlynntir göngugötum allt árið voru meira mannlíf, skemmtilegri stemning og minni mengun, en helstu ástæður þess að þeir voru því andvígir voru veðrið, fækkun íslenskra viðskiptavina, skert aðgengi og fá bílastæði.

Einstaklingar hlynntari göngugötum en rekstaraðilar

Zenter framkvæmdi sambærilega könnun meðal viðhorfshóps síns, 1.800 einstaklinga 18 ára og eldri búsettum á höfuðborgarsvæðinu. Tæplega helmingur svarenda, sem voru 923 var mjög eða frekar hlynntur göngugötum í miðborg Reykjavíkur allt árið, á meðan 32,7% voru því mjög eða frekar andvíg.

Íbúar í póstnúmeri 101 voru líklegastir til að vera hlynntir göngugötum allt árið, sem og þeir sem nýttu sér þjónustu í miðborginni vikulega eða oftar. Þeir sem aldrei kváðust nýta sér þjónustu í miðborginni voru andvígastir göngugötum allt árið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert