Keyrt á tvo menn og hund á Akureyri

Tveir hjólreiðamenn og hundur urðu fyrir bíl á Glerárgötu síðdegis …
Tveir hjólreiðamenn og hundur urðu fyrir bíl á Glerárgötu síðdegis í dag. mbl.is/Þorgeir

Keyrt var á tvo menn á hjóli og einn hund á Glerárgötu á Akureyri síðdegis í dag. Þeir voru í kjölfarið fluttir á sjúkrahús en vettvangur slyssins er girtur af með öllu, sem gefur til kynna að málið sé alvarlegt.

Hvorki hefur náðst í lögreglu á staðnum né hafa upplýsingar fengist um ástand þeirra sem urðu fyrir bílnum. Lögreglan er enn á vettvangi og rannsókn virðist vera í gangi á slysstað.

Slysstaðurinn hefur verið girtur af til rannsóknar.
Slysstaðurinn hefur verið girtur af til rannsóknar. mbl.is/Þorgeir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert