990 milljónir safnast frá 2007

Hlaupið fór fram síðastliðinn laugardag og tóku 14.667 hlauparar á …
Hlaupið fór fram síðastliðinn laugardag og tóku 14.667 hlauparar á öllum aldri þátt í þetta skiptið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Áheitasöfnun fyrir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka er lokið og söfnuðust alls 167.481.404 krónur, en það er nýtt met og rúmum 10 milljónum meira en í fyrra þegar rúmlega 156,9 milljónir króna söfnuðust.

Hlaupið fór fram síðastliðinn laugardag og tóku 14.667 hlauparar á öllum aldri þátt í þetta skiptið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka, sem greiðir allan kostnað við söfnunina og er því enginn kostnaður dreginn af söfnuðu fé og rennur allt til íslenskra góðgerðarfélaga.

„Þetta þýðir að frá árinu 2007 hafa safnast tæpar 990 milljónir til góðgerðarmála og að á næsta ári verður sú upphæð komin vel yfir einn milljarð króna,“ segir Katrín Þ. Jóhannsdóttir, verkefnastjóri hjá Íslandsbanka.

„Við sem aðalsamstarfsaðilar hlaupsins erum virkilega stolt af þessu verkefni en þegar við fórum af stað með það fyrir 12 árum voru það einungis starfmenn bankans sem voru að hlaupa til góðs. Í dag eru þetta mörg þúsund hlauparar og sögurnar á bak við þá sem drífa þetta áfram og fjölmargir heita á þá til að láta gott af sér leiða. Það er auðvitað frábært.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert