Gasmengun yfir heilsuverndarmörkum við Múlakvísl

Múlakvísl í dag. Mikið vatn er í ánni og gasmengun …
Múlakvísl í dag. Mikið vatn er í ánni og gasmengun er yfir heilsuverndarmörkum. Mbl.is/Jónas Erlendsson

Gasmengun mælist áfram við Láguhvola við Múlakvísl, en í nótt mældist hæsta gildi 20 ppm, sem er yfir heilsuverndarmörkum. Veðurstofan beinir því til fólks að staldra ekki við ána og ef það finni fyrir einkennum, svo sem sviða í nefi eða augum, eigi það að yfirgefa svæðið. Þetta kemur fram á vefsíðu Veðurstofunnar.

Jarðhitavatn lekur í Múlakvísl og hefur rafleiðni hækkað jafnt og þétt síðustu tvo daga og er nú um 260 míkróS/cm. Mikið vatn er í ánni eins og stendur, líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd sem tekin var af fréttaritara mbl.is á staðnum. Veðurstofan segir jarðhitaleka vera þekkta í Múlakvísl, en síðast varð svipaður leki í byrjun síðasta mánaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert