Aðgerðir samninganefndar lýsi „valdníðslu“

Súðavíkurhreppur er eitt þeirra sveitarfélaga sem vísað var úr samráðinu.
Súðavíkurhreppur er eitt þeirra sveitarfélaga sem vísað var úr samráðinu. mbl.is/Golli

Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Verk Vest, segir Samband íslenskra sveitarfélaga beita „hroka og yfirgangi“ í samningaviðræðum og sendir sambandinu tóninn í harðorðri fréttatilkynningu. 

Lýsir verkalýðsfélagið yfir furðu „með það ægivald sem samninganefnd sveitarfélaga hefur tekið sér með því að vísa sveitarfélögum, sem greiddu lægstlaunaða starfsfólkinu innágreiðslu vegna tafa á kjarasamningsgerð, úr samningaráði sveitarfélaganna. Slík aðgerð er bæði forkastanleg og lýsir valdníðslu gagnvart minni sveitafélögum í landinu.“

Þremur sveitarfélögum, Tjörneshreppi, Súðavíkurhreppi og og Reykhólahreppi, var vísað úr sam­ráði sveit­ar­fé­lag­anna í kjaraviðræðum vegna brota á ákvæðum samn­ings Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga. Fyrrnefnd sveitarfélög greiddu starfsfólki innágreiðslu vegna taka á kjarasamningsgerð í andstöðu við Samband íslenskra sveitarfélaga. 

Verk Vest vill hefja viðræður

„Jafnframt lýsir stjórn félagsins yfir vonbrigðum með það sem virðist vera orðið að markmiði hjá samninganefnd sveitarfélaga að beita hroka og yfirgangi í samningaviðræðum frekar en gera kjarasamning. Nægir þar að vísa í ákvörðun samninganefndar sveitarfélaga að kæra niðurstöðu Félagsdóms í deilu SGS til Hæstaréttar“, segir í fréttatilkynningunni. 

„Tvö af þeim sveitarfélögum sem var vísað úr samningaráði sveitarfélaganna, Súðavíkur- og Reykhólahreppur, eru á félagssvæði Verk Vest. Sveitarfélögin tvö hafa lýst yfir vilja til að ganga til kjarasamninga vegna starfsmanna þeirra sem falla undir kjarasamninga Verk Vest við sveitarfélögin. Stjórn Verk Vest fagnar afstöðu sveitarfélaganna tveggja og lýsir yfir skýrum vilja til að hefja viðræður við sveitarfélögin tvö á grundvelli kröfugerðar Verk Vest.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert