Braut af sér í fjórum lögregluembættum

Maðurinn var handtekinn ásamt öðrum manni á Höfn í Hornafirði …
Maðurinn var handtekinn ásamt öðrum manni á Höfn í Hornafirði á fimmtudagskvöld fyrir að taka mann nauðugan og flytja af heimili sínu. mbl.is/Golli

Lögreglan handtók tvo erlenda karlmenn á Höfn í Hornarfirði á fimmtudagskvöld sem tóku mann nauðugan og fluttu af heimili sínu. 

Mennirnir gistu fangageymslur og voru yfirheyrðir á föstudag, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu. Annar mannanna var færður fyrir Héraðsdóm Suðurlands á Selfossi þar sem viðkomandi var að morgni laugardags úrskurðaður í síbrotagæslu í fjórar vikur, eða til 15. nóvember. Maðurinn á ólokið málum frá a.m.k. fjórum lögregluembættum.  

Hinn maðurinn var látinn laus að yfirheyrslu lokinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert