Furðar sig á seinagangi Seðlabankans

Blaðamannafélagið furðar sig á því að Seðlabankinn hafi ekki nú …
Blaðamannafélagið furðar sig á því að Seðlabankinn hafi ekki nú þegar brugðist við afdráttarlausri niðurstöðu dómsins og afhent umrædd gögn. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Blaðamannafélag Íslands fagnar niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness hvað varðar fyrirspurn blaðamanns Fréttablaðsins um launakjör og hlunnindi starfsmanns Seðlabankans, en furðar sig á að bankinn hafi ekki nú þegar brugðist við afdráttarlausri niðurstöðu dómsins og afhent umrædd gögn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Blaðamannafélaginu. 

Þar segir enn fremur að fjórir sólarhringar séu liðnir frá birtingu dómsins, sem staðfesti niðurstöðu úrskurðarnefndar um upplýsingamál frá því um mitt sumar, en tæpt ár er liðið frá því farið var fram á afhendingu umræddra upplýsinga.

Það vekur ugg um að Seðlabankinn ætli að halda áfram að stunda þá geðþóttastjórnsýslu sem þar hefur verið stunduð,“ segir í tilkynningunni.

Blaðamannafélagið beinir því til forsætisráðherra að þagnarskylduákvæði um Seðlabankann verði skilgreint betur. Ljóst sé af málatilbúnaði bankans fyrir Héraðsdómi Reykjaness að bankinn noti það sem skálkaskjól.

Jafnframt sé vert að athuga hvort ekki við þurfi við yfirstandandi endurskoðun upplýsingalaga að líta til ákvæða um föst launakjör og hlunnindi opinberra starfsmanna og skilgreiningar þar að lútandi. 

Minnt er á að í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar er víða vikið að nauðsyn gagnsæis í opinberri stjórnsýslu og atvinnulífinu almennt til að auka traust í íslensku samfélagi, sem hefur verið af skornum skammti undanfarinn áratug. Framganga Seðlabanka Íslands gengur þvert gegn því markmiði. Bankanum má ekki haldast það uppi að slá leyndarhjúp um hlunnindi starfsmanna sinna á grundvelli bankaleyndar,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert