Freyja hafði betur í Hæstarétti

Frá Hæstarétti Íslands í morgun.
Frá Hæstarétti Íslands í morgun. mbl.is/Eggert

Hæstiréttur Íslands staðfesti í morgun dóm Landsréttar í máli Freyju Har­alds­dótt­ur gegn Barna­vernd­ar­stofu. Landsréttur komst að því í mars að Freyju, fyrr­ver­andi varaþing­manni Bjartr­ar framtíðar, hafi verið mis­munað vegna fötl­un­ar. Fyrir fjórum árum hafnaði barnavernd umsókn Freyju um leyfi til þess að taka barn í varanlegt fóstur.

Dómsmálið sem rekið var fyrir Hæstarétti eftir að Barnaverndarstofa áfrýjaði niðurstöðu Landsréttar snýst ekki um að umsókn Freyju um að verða fósturforeldri hafi verið hafnað heldur að hún eigi rétt á hefðbundnu matsferli áður en sú ákvörðun er tekin. 

Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður hafnað kröfum Freyju um að fella úr gildi úr­sk­urð úr­sk­urðar­nefnd­ar vel­ferðar­mála frá 6. júní 2016 þar sem staðfest var ákvörðun Barna­vernd­ar­stofu frá nóv­em­ber 2015 um synj­un á um­sókn Freyju um leyfi til þess að taka barn í fóst­ur.

Freyja taldi sig ekki hafa notið sömu málsmeðferðar og ófatlaðir við um­sókn sína um að ger­ast fóst­ur­for­eldri. Var henni m.a. neitað um að sækja nám­skeiðið Foster Pri­de sem er haldið á veg­um Barna­vernd­ar­stofu ætlað áhuga­söm­um fóst­ur­for­eldr­um, en um­sækj­end­um um að taka barn í fóst­ur er skylt að sækja slíkt áður en leyfi er veitt til að ger­ast var­an­legt fóst­ur­for­eldri. 

Hæstiréttur staðfesti dóm Landsréttar frá því í mars sl., sem …
Hæstiréttur staðfesti dóm Landsréttar frá því í mars sl., sem þýðir að Freyja á rétt á hefðbundnu matsferli varðandi umsókn sína um að verða fósturforeldri. mbl.is/Eggert

Aðalmeðferð málsins fór fram í Hæstarétti á miðvikudag og var dómsalurinn þétt setinn, meðal annars af hópi kvenna sem klæddist bleikum bolum sem á stóð: „Ég er fötluð mamma.“ 

Þetta er í þriðja sinn sem Freyja lýkur aðalmeðferð í málinu en málið var fyrst tekið fyrir í héraðsdómi í júní 2018. Málið hófst hins vegar fyrir fimm árum þegar Freyja sótti um að verða fósturforeldri. Í umsóknarferlinu felst að sækja um leyfi til barnaverndar og hafnaði stofnunin umsókn Freyju um að taka barn í varanlegt fóstur árið 2015. 

Freyja er ötul baráttukona fyrir réttindum fatlaðra og lagði hún til að mynda fram frum­varp árið 2015 um bann við mis­mun­un og rétt­indi fatlaðs fólks. Einnig barðist hún fyr­ir inn­leiðingu not­end­a­stýrðrar per­sónu­legr­ar aðstoðar fyr­ir fatlað fólk.

Freyja Haraldsdóttir.
Freyja Haraldsdóttir. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert