Fundur um húsnæðisuppbyggingu — bein útsending

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, á fundinum í morgun.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, á fundinum í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Opinn kynningarfundur borgarstjóra um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík verður haldinn í dag kl. 9 til 11 í Ráðhúsi Reykjavíkur. Alls eru 4.164 íbúðir á framkvæmdastigi í borginni. Þar af eru um 2.500 í byggingu fyrir almennan markað og rúmlega 1.600 á vegum húsnæðisfélaga. 

Samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg eru um 54 þúsund íbúðir í borginni eins og staðan er í dag.

Á fundinum verður lögð áhersla á samþykkt verkefni og framkvæmdir sem eru nýlega hafnar, en einnig verður gefin innsýn í verkefni á undirbúningsstigi. 

Dagskrá:

  • Uppbygging íbúða í Reykjavík
    Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
  • Ný búsetuform í borgum
    Guðrún Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta
  • Húsnæðisuppbygging í hverfaskipulagi.
    Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs
Alls eru 4.164 íbúðir á framkvæmdastigi víðs vegar um borgina.
Alls eru 4.164 íbúðir á framkvæmdastigi víðs vegar um borgina. mbl.is/​Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert