Grænar áherslur í fjárhagsáætlun borgarinnar

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2020 og fimm ára áætlun til 2024 var samþykkt á fundi borgarstjórnar í kvöld. Meirihlutinn segir að mikil áhersla sé lögð á græn verkefni borgarinn í fjárhagsáætlun fyrir næsta ár, þar sem alls er gert ráð fyrir 4,6 milljörðum til grænna fjárfestinga.

Auk þess verði framlög til skóla og velferðarmála aukin, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Þar segir enn fremur að í samþykktum breytingatillögum séu framlög aukin til samgöngusamninga, græns bókhalds, hinsegin félagsmiðstöðvar og fjölgunar fartölva og tæknibúnaðar í leikskólum, grunnskólum og frístundaþjónustu.

Framlög eru einnig aukin til velferðarmála vegna neyðarskýlis við Grandagarð, foreldraþjálfunar og nýrra stöðugilda í barnavernd. Að auki var samþykkt að halda áfram verkefninu Tinnu sem hefur að markmiði að styðja unga einstæða foreldra og framlög til Bataskólans samþykkt,“ segir í tilkynningunni.

Áætlunin endurspegli óvissu í efnahagslífinu

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að áætlunin endurspegli þó ákveðna óvissu sem uppi er í efnahagslífinu: 

„Staðan í efnahagslífinu krefst þess að við séum enn betur á varðbergi gagnvart efnahagsumhverfinu. Við mætum samdrætti með traustri fjármálastjórn, hóflegri hagræðingarkröfu en líka metnaðarfullri fjárfestingaráætlun borgarsjóðs og borgarfyrirtækja, meðal annars með öflugri uppbyggingu í húsnæðismálum. Þannig beitum við styrk borgarinnar til að hafa jákvæð áhrif á hagkerfið,“ segir Dagur og bætir við. „Á næsta ári stígum við einnig stór skref við að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla og ný verkefni á sviði velferðar verða áberandi eins og innleiðing NPA og nýtt stuðningsnet í þjónustu við börn og fjölskyldur.“

Meðal helstu fjárfestinga Reykjavíkurborgar á næsta ári er uppbygging íþróttamannvirkja, ekki síst í Breiðholti og Úlfarsárdal, á svæðum ÍR í Suður-Mjódd þar sem verið er að byggja fjölnota íþróttahús og frjálsíþróttaaðstöðu, og athafnasvæði Fram í Úlfarsárdal þar sem skóflustunga hefur þegar verið tekin að fjölnota íþróttahúsi, knattspyrnustúku og keppnisvelli en þar er að auki verið að byggja útisundlaug og menningarmiðstöð. Laugavegur verður einnig gerður að varanlegri göngugötu og Hlemmtorg verður endurgert á næstu árum.

Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2020 gerir ráð fyrir 2,5 milljarða króna afgangi af A-hluta og að rekstrarniðurstaða samstæðu borgarinnar, A-hluta og B-hluta, verði jákvæð um 13 milljarða króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert