ASÍ þurfti ítrekað að hafa afskipti af fyrirtækinu Menn í vinnu áður en það varð gjaldþrota, vegna slæms aðbúnaðar starfsfólks og brota á kjörum þess. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ en ummæli starfsmanns ASÍ í tengslum við umfjöllun um aðstöðu rúmenskra verkamanna, sem talið var að væru í nauðungarvinnu hjá starfsmannaleigunni Menn í vinnu, voru í dag dæmd dauð og ómerk í Héraðsdómi Reykjavíkur.
ASÍ bendir á að frá því Menn í vinnu hóf störf hafði Vinnumálastofnun það einnig til rannsóknar og var í samstarfi við bæði Vinnueftirlit ríkisins og ríkisskattstjóra.
Tvenn ummæli sem María Lóa Friðjónsdóttir, sérfræðingur í vinnustaðaeftirliti hjá ASÍ, lét falla í fréttum Stöðvar 2 í febrúar á þessu ári voru dæmd dauð og ómerk. ASÍ bendir hins vegar á að starfsmanni sambandsins hafi verið heimilt að vísa til þess að mennirnir hafi verið svangir, peningalausir og hræddir auk þess sem þeir hefðu búið við óásættanlegar og heilsuspillandi aðstæður á vegum fyrirtækisins.
„Hins vegar voru dæmd dauð og ómerk ummæli starfsmannsins um innlagnir á og úttektir af bankareikningum starfsmanna og að framkvæmdastjóri fyrirtækisins virtist hafa aðgang að bankareikningum stafsmanna sinna. Þótti dómara skorta gögn til að styðja við þessar fullyrðingar þrátt fyrir að starfsmenn hafi í frétt Stöðvar 2 sýnt viðstöddum gögn þessu til stuðnings. Heildarniðurstaða dómsins er því umdeilanleg þó ekki sé meira sagt,“ segir í tilkynningu ASÍ sem hefur ekki tekið ákvörðun um hvort dómnum verði áfrýjað.
Starfsfólk ASÍ mun hér eftir sem hingað til standa með félagsmönnum sínum og enduróma veruleika þeirra á vinnumarkaði. Til stendur að efla vinnustaðaeftirlit verkalýðshreyfingarinnar enn frekar á næstu mánuðum.
„Félagar í ASÍ mega vera afskaplega stoltir af eftirlitsfólki hreyfingarinnar sem sinnir erfiðum störfum í baráttunni fyrir betri vinnumarkaði. Starfsmenn í vinnustaðaeftirliti ASÍ hafa unnið þrekvirki við að gæta hagsmuna vinnandi fólks og nýtur órofa stuðnings og fulls trausts í sínum störfum. Alþýðusambandið leitar stöðugt leiða til að efla eftirlit enda er full ástæða til að hafa sérstakar áhyggjur af fólki af erlendum uppruna sem kemur í gegnum starfsmannaleigur á íslenskan vinnumarkað, nauðungarvinna og þrælahald verður aldrei liðið á íslenskum vinnumarkaði,“ segir Drífa Snædal, forseti ASÍ.