Hefur áhyggjur af vinnuálagi lækna

Stjórn læknaráðs Landspítala lýsir yfir áhyggjum af starfsskilyrðum og vinnuálagi á læknum Landspítala og segir að álag á mörgum deildum spítalans hafi verið mikið og vaxandi undanfarin ár.

Þetta kemur fram í ályktun stjórnar læknaráðs.

Þar segir að skýrsla McKinsey frá árinu 2016 hafi bent á mikilvægi þess að taka mönnun klínískra starfstétta til endurskoðunar.

„Fram kom í skýrslunni að læknar Landspítala sinntu fleiri heimsóknum og innlögnum á hvert stöðugildi en erlend samanburðarsjúkrahús og að hlutfall lækna af heildarmannafla Landspítala væri lágt. Setja þarf upp viðmið fyrir hámarksfjölda sjúklinga á hvern lækni sem gæðavísi fyrir þjónustu. Fari hlutfallið yfir ákveðin mörk skal grípa til viðeigandi ráðstafana,“ segir í ályktuninni.

Bent er á að læknaráð hafi undanfarin ár ályktað um ýmis efni sem hafa valdið auknu álagi og stuðlað að minni starfsánægju meðal lækna. Þar eru nefndar sparnaðargerðir, skipuritsbreytingar, vinna við jafnlaunavottun, biðlistar eftir rannsóknum og skurðaðgerðum, frestanir á skurðaðgerðum, ástand á bráðamóttöku, ófullnægjandi húsnæði og fleira.

„Aukin umræða hefur verið um óhóflegt álag og í kjölfar þess kulnun í starfi sem hefur því miður gætt í vaxandi mæli meðal lækna. Læknaráð ítrekar því fyrri ályktanir um að mæta þurfi vaxandi eftirspurn eftir þjónustu spítalans með því að ráða fleiri lækna og bæta aðbúnað þeirra. Ábyrgð á starfsemi Landspítalans, þjónustu við sjúklinga og öryggi þeirra liggur hjá heilbrigðisyfirvöldum sem ber að tryggja að fjármögnun starfseminnar sé í samræmi við verkefni hennar og hlutverk,“ segir í ályktuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert