Snjóflóð á Tröllaskaga

Vegum er lokað vegna snjóflóðahættu en þrjú snjóflóð hafa fallið …
Vegum er lokað vegna snjóflóðahættu en þrjú snjóflóð hafa fallið á Tröllaskaga í nótt og morgun. mbl.is/Styrmir Kári

Snjóflóð féll á Ólafsfjarðarveg við Ólafsfjarðarmúla í nótt eða morgun og annað féll á Siglufjarðarveg á sama tíma. Auk þess féll annað snjóflóð fyrir ofan veg á Siglufjarðarvegi. Áfram er snjóflóðahætta á vegunum og eru þeir lokaðir af þeim sökum.

Samkvæmt sérfræðingi á ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands er flóðið sem féll á Ólafsfjarðarveg um tveggja metra þykkt á veginum og telst það þokkalega stórt. Hin flóðin eru minni.

Spár gera áfram ráð fyrir leiðindaveðri á Tröllaskaga fram eftir degi en appelsínugul viðvörun er í gildi á Norðurlandi.

Áfram er mikil snjóflóðahætta við veginn og til fjalla en ekki er talin hætta í byggð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert