Innkalla Síríussúkkulaði

mbl.is/Getty Images

Vegna bilunar í vélbúnaði hefur Nói Síríus nú innkallað þrjú vörumerki þar sem ekki er hægt að útiloka að plast hafi borist í súkkulaðiplötur. Um er að ræða tvær stærðir af hreinu Síríus rjómasúkkulaði og eina stærð af Síríus suðusúkkulaði.

Eftir því sem fram kemur í tilkynningu er plastið sem kann að hafa farið í súkkulaðið, ýmist blátt eða bleikt að lit og ætti því að vera sjáanlegt neytendum þegar varan er opnuð. Hefur umræddur vélbúnaður verið lagfærður og er því um einangrað tilvik að ræða.

Neytendur sem hafa keypt tilgreindar vörur eru beðnir um að skila þeim inn í verslun eða á skrifstofu Nóa Síríusar að Hesthálsi 2 til 4. 

Vörurnar sem um ræðir:

Síríus rjómasúkkulaði 3x100 g. Strikamerki: 5690576570585. Best fyrir: 03.06.2021 og 04.06.2021.

Síríus rjómasúkkulaði 150 g. Strikamerki: 5690576570608. Best fyrir: 17.06.2021.

Síríus suðusúkkulaði 300 g Strikamerki: 5690576560302. Best fyrir: 09.06.2021, 10.06.2021, 11.06.2021, 12.06.2021.

Um er að ræða þrjár tegundir Síríus súkkulaðis.
Um er að ræða þrjár tegundir Síríus súkkulaðis.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert