Flestir sem tjá sig á Twitter um nýja útvarpsstjórann Stefán Eiríksson eru ánægðir með ráðningu hans. Minnast þeir margir hverjir á störf hans sem borgarritara og lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu í færslum sínum. Tími hans í þáttunum Útsvari fær einnig sinn sess.
„Hefur heilbrigða og góða sýn“
Það eru frábærar fréttir fyrir Rúv að Stefán Eiríksson hafi verið ráðinn útvarpsstjóri úr hópi mjög hæfra umsækjenda. Ég er sannfærður um að hann hefur heilbrigða og góða sýn á hlutverk almannaútvarps og getur leitt Rúv inn í nýja tíma. Til hamingju @StefanEiriks
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) January 28, 2020
Söknuður úr ráðhúsinu
Ég á eftir að sakna @StefanEiriks svo mikið úr ráðhúsin að ég er að meta að hætta þessu rugli og sækja um hjá @RUVohf - til lukku 👏🏼👏🏼🙌🏼https://t.co/yXOhBPclEF
— Kristín Soffía (@KristinSoffia) January 28, 2020
Vonandi klárari rannsóknarlöggur
Vonandi leiðir þetta til þess að rannsóknarlöggur í sjónvarpþáttum verði klárari í kjölfarið
— Gudni Halldórsson (@GudniKlipp) January 28, 2020
Virðing eftir „rimmu hans við Hönnu Birnu“
Akkúrat það sem RÚV vantaði, lögmann sem Útvarpsstjóra. Nú fara hlutirnir að gerast. Annars ber ég ómælda virðingu fyrir manninum eftir rimmu hans við Hönnu Birnu um árið.https://t.co/mCJbeyss4A
— Valur Grettisson (@valurgr) January 28, 2020
„Getur hann ekki sinnt bæði?“
Mikið er Ruv heppið að hafa náð í @StefanEiriks. Og á eftir að sakna hans úr ráðhúsinu. Getur hann ekki sinnt bæði?
— Svanborg Sigmarsd (@Svanb) January 28, 2020
Lifðu í lukku en ekki í krukku
Stefán Eiríks gamall skólabróðir minn sem skrifaði í glósubókina mína - lifðu í lukku en ekki í krukku og mundu mig ég man þig. 😂
— Ragga (@Ragga0) January 28, 2020
Tapaði tvívegis gegn Stefáni í Útsvari
Ímynda mér að ástandið á @StefanEiriks sé svipað núna og fyrir 30 árum. Gott stökk og kýla út í loftið.
— Jóhann Óli Eiðsson (@jedissson) January 28, 2020
Óska honum velfarnaðar í starfi þótt hann hafi lagt mig í tvígang að velli í Útsvari. pic.twitter.com/Csrws3fL7q
Útgeislun í Útsvari
Ég held að Stefán Eiríksson verði góður Útvarpsstjóri því hann hefur svo gott geðslag. Það er vanmetið að hafa gott geðslag. Ég hef svosem ekkert fyrir mér í því nema þá útgeislun sem hann hafði í Útsvari. Virtist hafa einstaklega gott geðslag þar.
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) January 28, 2020