Hvasst en höfuðborgarsvæðið í skjóli

Kort/Veðurstofa Íslands

Útlit er fyrir allhvassa eða hvassa norðaustan- og austanátt en hægari vind austanlands í dag. „Einnig ber að taka fram að stór hluti höfuðborgarsvæðisins verður í þokkalegu skjóli. Það snjóar allvíða á norðurhelmingi landsins, ýmist í formi élja eða samfelldari snjókomu. Sunnanlands má búast við slyddu eða snjókomu því úrkomubakki verður þar viðloðandi. Líklega sleppur Faxaflóasvæðið að mestu við úrkomu í dag. Hitinn verður kringum frostmark.

Á morgun (laugardag) er minnkandi norðanátt í kortunum með dálitlum éljum, en yfirleitt úrkomulaust sunnan til á landinu. Það kólnar smám saman í veðri.

Á sunnudag gera spár ráð fyrir að gangi í stífa vestan- og suðvestanátt með éljagangi, en þurrt og bjart veður um landið austanvert,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Norðaustan og austan 13-20 m/s í dag, en hægari vindur austanlands. Snjókoma eða él um landið norðanvert, slydda eða snjókoma sunnanlands, en þurrt að mestu við Faxaflóa. Hiti kringum frostmark.

Norðlæg átt 8-13 á morgun og él, en þurrt sunnan til á landinu. Vægt frost. Lægir undir kvöld og kólnar meira.

Á laugardag:

Norðlæg átt 5-13 m/s og él, en þurrt að kalla sunnanlands. Frost 0 til 4 stig. Lægir um kvöldið og kólnar.

Á sunnudag:
Suðvestan- og vestanátt, víða 10-15 og él, en bjartviðri um landið austanvert. Frost 0 til 6 stig.

Á mánudag:
Suðlæg átt 5-10. Snjókoma á Suður- og Vesturlandi, en bjart veður norðaustan til á landinu. Hiti breytist lítið.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Austlæg eða breytileg átt og líkur á éljum eða snjókomu í flestum landshlutum. Áfram frost um allt land.

Á fimmtudag:
Austan- og norðaustanátt með snjókomu eða éljum, en þurrt suðvestanlands. Frost 1 til 6 stig.

Veður á mbl.is

Vetrarfærð er í flestum landshlutum en greiðfært er frá Reyðarfirði að Skaftafelli. Víða er verið að kanna færð og hreinsa vegi eftir nóttina, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Óvissustig er í gildi í Súðavíkurhlíð vegna snjófljóðahættu. Vegurinn um Þverárfjall er lokaður vegna veðurs, Siglufjarðarvegur og Ólafsfjarðarmúli eru lokaðir vegna snjóflóðahættu. Þæfingsfærð er á nokkrum leiðum á Norður- og Norðausturlandi en unnið að hreinsun. Ófært er um Hólasand. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert