Bjóða verkfallshlé gegn staðfestingu á „Kastljóstilboði“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Efling hefur boðist til að fresta verkfallsaðgerðum í tvo sólarhringa gegn því að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri veiti skriflega staðfestingu á „Kastljósstilboðinu“. Erindi þessa efnis hefur verið sent til borgarstjóra með afriti á ríkissáttasemjara. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu. 

Verkfalli yrði frestað í tvo sólarhringa, frá því klukkan 00:01 á miðvikudag til klukkan 23:59 á fimmtudag næstkomandi.

Í Kastljósi 19. febrúar síðastliðinn sagði Dag­ur B. Eggerts­son borg­ar­stjóri að til­boð Reykja­vík­ur­borg­ar væri „mesta hækk­un lægstu launa“ sem sést hefði. Þar ræddi hann um 110 þúsund króna grunnlaunahækkun á samningstíma fyrir ófaglærðan Eflingarstarfsmann. 

„Heildstætt tilboð í þá veru hefur ekki komið fram á samningafundum þrátt fyrir athugasemdir og óskir samninganefndar Eflingar,“ segir í tilkynningu stéttarfélagsins.  

Með erindi Eflingar til borgarstjóra fylgir tillaga að skriflegu samkomulagi milli samningsaðila. Í því er fastbundið að grunnlaun Eflingarfélaga hækki á bilinu 100-110 þúsund á samningstímanum, mest hjá lægst launuðum og minnst hjá þeim hæst launuðu.

Í samkomulaginu segir að með þessu hafi sátt náðst um grunnlaunahækkanir á samningstímanum og þá sé hægt að hefja vinnu við að ná saman um önnur atriði. Samkomulagið tekur eingöngu til grunnlauna en ekki annarra atriða, svo sem álaga, sérgreiðslna og uppbóta. 

Erindið var sent til  borgarstjóra klukkan 11:00 og er gefinn frestur til svars til klukkan 16:00 í dag, 3. mars.

„Þetta samkomulag myndi staðfesta það sem borgarstjóri hefur sjálfur lagt fram í umræðunni, það er að segja að Eflingarfélögum á lægstu launum standi til boða 20 þúsund króna grunnlaunahækkun umfram lífskjarasamninginn. Við höfum sagt að slíkt tilboð myndi færa okkur í samkomulagsátt og viljum með þessu sýna að okkur er alvara með því. Við göngum út frá því að borgarstjóra hafi líka verið alvara og sé tilbúinn að sýna það í verki. Svo verður að koma í ljós hvernig gengur að ná saman um önnur atriði,“ er haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, í tilkynningu.

Síðasti fundur samninganefnda Eflingar og Reykjavíkurborgar var á miðvikudaginn í síðustu viku. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í deilunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert