Spá því að 2.500 til 6.000 smitist

mbl.is/Kristinn Magnússon

Búist er við því að fyrir lok apríl 2020 hafi líklega um 2.500 manns á Íslandi verið greindir með COVID-19, en talan gæti náð tæplega 6.000 manns samkvæmt svartsýnustu spá. Þetta kemur fram í uppfærðri spá yfirvalda.  

Spáin hefur breyst verulega frá því 19. mars þar sem faraldurinn er í veldisvexti og frá þeim tíma hefur fjöldi tilfella allt að því tvöfaldast.

Búist er við því að um 20 einstaklingar veikist alvarlega, …
Búist er við því að um 20 einstaklingar veikist alvarlega, þ.e. þarfnist gjörgæslu, á tímabilinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Helstu niðurstöður spálíkansins með gögnum til og með 22. mars eru eftirfarandi:

  • Búist er við því að fyrir lok apríl 2020 hafi líklega um 2.500 manns á Íslandi verið greindir með COVID-19, en talan gæti náð tæplega 6.000 manns skv. svartsýnustu spá.

  • Búist er við að fjöldi greindra einstaklinga með virkan sjúkdóm nái hámarki á fyrstu vikum apríl, og verði sennilega nær 2.000 manns, en gæti náð tæplega 4.500 manns skv. svartsýnustu spá.

  • Búist er við að á meðan að faraldurinn gengur yfir muni um 170 manns þarfnast aðhlynningar í innlögn á sjúkrahúsi, en gæti náð um 400 manns skv. svartsýnustu spá.

  • Mesta álag á heilbrigðisþjónustu vegna sjúkrahúsinnlagna verður um miðjan apríl en þá er gert ráð fyrir að um 90 einstaklingar geti verið inniliggjandi, en svartsýnasta spá er 200 einstaklingar.

  • Búist er við því að um 20 einstaklingar veikist alvarlega, þ.e. þarfnist gjörgæslu, á tímabilinu en svartsýnasta spá er á bilinu 45 - 50 einstaklingar.

  • Mesta álag á gjörgæsludeildir gæti verið í annarri viku apríl, en þá er búist við því að 7 manns liggi þar inni á sama tíma, en samkvæmt svartsýnustu spá gætu það verið 18 manns.

Sjá nánar hér

Spritt
Spritt mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert