Föstudagar eru þemadagar á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, eins og áður hefur verið greint frá á þessum vettvangi. Í gær var þemað helgað Ölmu Möller landlækni.
„Alma er ekki bara glæsileg kona sem er flott í fatavali heldur einnig framúrskarandi í sínu starfi og hver vill ekki vera eins og Alma á þessum tímum,“ segir Árdís Hulda Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður á Hrafnistu. Alma hefur enda vakið athygli fyrir fallegan og klassískan klæðaburð síðustu vikur, þrátt fyrir annir.
Ekki er að sjá annað en uppátækið hafi mælst vel fyrir meðal starfsfólks og vistmanna, sem sendu landlækni baráttukveðjur.
Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.