Úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald

Hvalfjarðargöng.
Hvalfjarðargöng. mbl.is/Árni Sæberg

Fjórir karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 5. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á fíkniefnamáli.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Mennirnir voru handteknir í aðgerðum lögreglunnar í og við Hvalfjarðargöng í lok febrúar, en lagt hefur verið hald á talsvert af fíkniefnum í tengslum við málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert