Hjarta til heiðurs heilbrigðisstarfsfólki

Flugmenn Icelandair-vélarinnar mynduðu hjarta er þeir flugu yfir höfuðborgarsvæðinu.
Flugmenn Icelandair-vélarinnar mynduðu hjarta er þeir flugu yfir höfuðborgarsvæðinu. Skjáskot/Flightradar24

Flugvél Icelandair lenti nýlega á Keflavíkurflugvelli með átján tonn af lækningavörum frá Kína vegna baráttunnar við kórónuveiruna. Flugmenn vélarinnar ákváðu að mynda hjarta á leið sinni yfir höfuðborgarsvæðið.

Að sögn Ásdísar Ýrar Pétursdóttur, upplýsingafulltrúa Icelandair, mynduðu þeir hjartað, sem sjá má á meðfylgjandi mynd, til heiðurs heilbrigðisstarfsfólki.

Um er að ræða þriðju flugferðina til að sækja lækningavörur til Sjanghæ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert