Fjórir fá 142 þúsund hver

Enginn var með allar tölur réttar í Lottó-útdrætti vikunnar og verður potturinn því fjórfaldur í næstu viku. Fjórir miðahafar skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver þeirra rúmar 142 þúsund krónur í vinning. Þrír miðanna voru í áskrift og fjórði miðinn var keyptur í Hagkaup á Furuvöllum á Akureyri. 

Sjö voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og fá þeir 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir á N1 Leiruvegi á Akureyri, Krambúðinni á Hringbraut í Reykjanesbæ, Krambúðinni Laugalæk í Reykjavík, einn keypti miða sinn í Lottó-appinu, einn á vefnum lotto.is og tveir voru í áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert