Veður í dag er með eindæmum gott á landsvísu og útlit fyrir að hiti fari upp í sautján stig á höfuðborgarsvæðinu. Steinþór Einarsson, skrifstofustjóri hjá íþrótta- og tómstundaráði borgarinnar, segir aðspurður að hætt sé við því að raðir myndist í sundlaugar borgarinnar í góða veðrinu en traffík í sundlaugarnar sé þó að komast í eðlilegt horf.
Mánudaginn 1. júní mega sundlaugarnar taka á móti fleirum en nú eða 75% af leyfðum fjölda. 15. júní munu þær geta tekið á móti jafn mörgum og áður en takmarkanir sem fylgdu kórónuveirufaraldrinum voru settar á.
Steinþór segir að vel hafi gengið hjá sundlaugum borgarinnar síðan þær voru opnaðar á mánudag. „Það er alveg búin að vera traffík og einhverjir hafa þurft að bíða en annars hefur þetta bara gengið mjög vel.“
Aðspurður segir Steinþór að aðsóknin sé mest í Laugardalslaug og mestar líkur á að fólk lendi í röð þar þó laugin megi taka á móti 350 manns á klukkustund. Hinar laugar borgarinnar mega taka á móti 115 manns eða fleirum á hverjum klukkutíma. Það þýðir þó ekki að fólk sé rekið upp úr eftir klukkustund í sundi.
Á mánudaginn opna líkamsræktarstöðvarnar og Steinþór segir að það gæti haft áhrif á aðsókn, sérstaklega hvað varðar sundlaugar sem eru tengdar við líkamsræktarstöðvar, eins og í Laugardal og Breiðholti. „Veðurspáin í næstu viku er reyndar ekki sérstök svo við sjáum hvað gerist.“
Steinþór segir að það komi alveg upp á að fólk brjóti tveggja metra regluna.
„Það virðist eins og margir séu algjörlega búnir að gleyma þessu, ekki bara í sundi heldur líka annars staðar. Við viljum aðallega að fólk taki tillit til annarra.“
Starfsfólk hefur þó ekki þurft að skerast í leikinn í sundlaugum borgarinnar vegna brota á nálægðartakmörkunum ekki nema með því að nota kallkerfið til að benda fólki á að virða tveggja metra regluna, að sögn Steinþórs.