Sólrún staðráðin í að halda áfram

Rætt var við Sólrúnu í kvöldfréttum RÚV í gær.
Rætt var við Sólrúnu í kvöldfréttum RÚV í gær. Skjáskot/RÚV

„Maður á sína neikvæðu daga en yfir heildina er maður bara tilbúin í þetta,“ segir Sólrún Alda Waldorff. Hún og kærasti hennar, Rahmon Anvarov, brenndust afar illa eftir bruna í kjallaraíbúð í Mávahlíð í október en Sólrún var um tíma í bráðri lífshættu.

Rætt var við Sólrúnu í kvöldfréttum RÚV í gær. Hún var í dái í Svíþjóð í mánuð og hefur gengist undir fjölda aðgerða vegna annars og þriðja stigs brunasára. Sólrún og Rahmon eru staðráðin í að halda lífinu áfram en stíf endurhæfing og húðígræðslur eru fram undan.

Upptök eldsvoðans eru tal­in mega rekja til þess að eld­ur hafi komið upp í olíu í potti og eig­andi íbúðar­inn­ar hafi reynt að hlaupa með hann út, en pott­ur­inn dottið í gólfið. 

Eig­andi íbúðar­inn­ar komst út af sjálfs­dáðum, en hið sama gilti ekki um þau Sól­rúnu Öldu Waldorff og Rahmon An­varon, sem lágu sof­andi í her­bergi sem Rahmon leigði í íbúðinni.

Bati Sólrúnar hefur verið kraftaverki líkastur og hún segir sjálf að núna, rúmu hálfu ári síðar, líði henni bara ágætlega.

Hún beinir því til fólks að hafa brunavarnir í lagi. „Þetta hefði ekki þurft að gerast. Slys verða en það er alltaf hægt að koma í veg fyrir þau. Bara með því að hafa brunavarnateppi og vera viss um að reykskynjarinn sé í lagi. Það hjálpar alltaf.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert