Ráðherra boðar stórátak í brunavarnamálum

Ráðherra ásamt starfsfólki brunavarnamála hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Ráðherra ásamt starfsfólki brunavarnamála hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Ljósmynd/Aðsend

Ráðist verður í margþættar aðgerðir til þess að efla umgjörð brunamála- og brunavarna á Íslandi, m.a. með því að fjölga starfsmönnum sem sinna brunavörnum og efla slökkviliðin á landsbyggðinni.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, skýrði frá fyrirhuguðum aðgerðum á kynningarfundi í húsakynnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar fyrr í dag.

Með því er Ásmundur að bregðast við ábendingum í nýrri skýrslu um málaflokkinn sem unnin var af starfshópi skipuðum af stjórn Húsnæðis- og mannavirkjastofnunar. Skýrslan verður birt í heild sinni á næstu dögum.

Eftirlitseining færist til Sauðárkróks

Í skýrslunni kemur meðal annars fram að nauðsynlegt sé að efla og stækka slökkviliðin á landsbyggðinni. Einnig þurfi að uppfæra regluverk brunamála og gefa út leiðbeiningar um eftirfylgd reglugerða sem og að efla stjórnsýslu málaflokksins.

Ein þeirra aðgerða sem ráðherra ætlar að gera er að fjölga starfsmönnum sem sinna brunavörnum, en brunavarnir heyra undir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) eftir sameiningu Íbúðalánasjóðs og Mannvirkjastofnunar um síðustu áramót.

Breytingarnar fela einnig í sér að sú eining sem sinnir skipulagningu brunaeftirlits mun færast til innan stofnunarinnar og verður framvegis hýst á starfsstöð HMS á Sauðárkróki. Stöðugildum á Sauðárkróki mun fjölga um átta en fyrir starfa þar 20 manns.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, ætlar að bregðast við …
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, ætlar að bregðast við nýrri skýrslu með því að ráðast í margar breytingar í brunavarnamálum. Ljósmynd/Aðsend

Staðan nokkuð góð miðað við nágrannalönd

Við framlagningu frumvarps um sameiningu Mannvirkjastofnunar og íbúðalánasjóðs í HMS lýstu sumir umsagnaraðilar yfir áhyggjum af því hvort vægi brunamála yrði nægilega mikið innan nýrrar stofnunar. Til að bregðast við þessum sjónarmiðum var stofnaður starfshópur um stöðu brunamála með aðkomu ytri ráðgjafa.

Í skýrslu starfshópsins kemur m.a. fram að staða brunamála á Íslandi sé nokkuð góð í samanburði við nágrannalöndin. Tjón af völdum eldsvoða sé minna hér á landi, hvort sem litið sé til mannslífa eða eigna.

Þó telja skýrsluhöfundar það áhyggjuefni að síðustu ár hafi tjón vegna bruna verið að aukast og brýnt sé að finna leiðir til að stöðva þá þróun. Nauðsynlegt sé að stórefla brunaeftirlit og gerð brunavarnaáætlana.

Slökkvilið á hverjum stað eru á forræði sveitarfélaga en ríkisvaldið fer, sem áður segir, með stjórnsýslu brunamála á vettvangi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Ríkið hefur því bæði skyldum að gegna sem eftirlitsaðili auk þess að sinna víðtæku samræmingar- og stefnumörkunarhlutverki.

Þarf að bæta verulega í segir forstöðumaður brunamála

Davíð Snorrason, forstöðumaður brunamála hjá HMS, segir í tilkynningu að það hafi verið þörf á að bæta verulega í brunamál í dálítinn tíma:

„Við verjum ekki nema hluta þeirra gjalda sem innheimt eru með byggingaröryggisgjaldinu til þeirra verkefna sem áskilið er í lögunum. Ráðherra hefur sagst vilja lyfta grettistaki í málaflokknum og þannig styrkja innviði og viðbúnað um land allt.“

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, segir í tilkynningu að við séum reglulega minnt á mikilvægi brunamála, nú síðast í morgun:

„Brunamálin eru gríðarlega mikilvægt hagsmuna- og öryggismál, eins og við erum því miður reglulega minnt á. Síðast í Hrísey í morgun. Líkamstjón, svo ekki sé talað um manntjón, er hræðilegt gjald sem við greiðum fyrir skort á fræðslu, brunaeftirliti og brunavörnum almennt. Við getum ekki komið í veg fyrir allt brunatjón en við getum fækkað tilfellunum og stuðlað að því að þau verði ekki of dýru verði keypt fyrir samfélagið allt. Við viljum og eigum að stórefla brunavarnir.“

„Einn liður í því er að fjölga þeim sem sinna eftirliti með að lögum og reglum sé framfylgt á öllum stigum, allt frá byggingu mannvirkja til þjálfunar slökkviliða, rannsókna á orsökum og fræðslu til almennings. Ríkisstjórnin hefur skýran vilja til að styðja og styrkja þær fáu stofnanir sem eru á landsbyggðinni. Þessar umbætur sem við höfum sett á oddinn í brunamálum eru mjög mikilvægar og munu skila okkur sterkari innviðum og viðbúnaði um land allt og um leið fjölga störfum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert