Búið að slökkva eldinn á Snartarstöðum

Eldurinn kviknaði á sveitabænum Snartarstöðum í Lundarreykjadal.
Eldurinn kviknaði á sveitabænum Snartarstöðum í Lundarreykjadal. Ljósmynd/Skessuhorn

Eldurinn í Borgarfjarðardölum í nótt kviknaði á sveitabænum Snartarstöðum í Lundarreykjadal.

Að sögn Bjarna Þorsteinssonar, slökkviliðsstjóra Borgarbyggðar, er búið að slökkva alla glæður og afhenda lögreglunni vettvanginn.

Óljóst er með eldsupptök en ljóst er að þau urðu á efri hæð hússins. 

Fjölskyldan sem var í húsinu komst að sjálfsdáðum út um útidyrnar og fékk hún í framhaldinu aðhlynningu hjá sjúkraflutningamönnum. Ekki þurfti að flytja hana á sjúkrahús.

Reykskynjari var í húsinu en Bjarni hvetur fólk samt almennt til að fara varlega og vera með reykskynjara í húsum sínum og hafa eldvarnir í lagi.

Snartarstaðir í Lundarreykjadal. Hægt er að smella á myndina og …
Snartarstaðir í Lundarreykjadal. Hægt er að smella á myndina og þá opnast gagnvirkt kort þar sem m.a. er hægt að þysja inn og út. Kort/Map.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert