Katrín Tanja segir skilið við crossfit

Katrín Tanja á heimsleikunum í crossfit.
Katrín Tanja á heimsleikunum í crossfit. Ljósmynd/Facebook

Katrín Tanja Davíðsdóttir ætlar ekki að keppa í heimsleikunum í crossfit á þessu ári. Þar að auki ætlar hún ekki að stunda íþróttina fyrr en breytingar hafa verið gerðar hjá fyrirtækinu CrossFit.

Ákvörðunin tengist rasískum ummælum Greg Glassman, sem sagði í framhaldinu af sér sem forstjóri CrossFit.

Katrín Tanja greinir frá þessu á Instagram-síðu sinni. Hún segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með viðbrögð CrossFit vegna málsins og telur að grundvallarbreytingar hafi ekki verið gerðar á starfseminni.

„Ég skammast mín og er vonsvikin og reið vegna atburða síðustu daga hjá stofnun sem ég hef lagt mig alla fram við að þjóna á sem allra bestan hátt,“ skrifar hún.

Katrín Tanja hef­ur tví­veg­is unnið heims­leik­ana í cross­fit, árið 2015 og 2016. Í fyrra lenti hún í 4. sæti á heims­leik­un­um og varð efst af ís­lensku kon­un­um sem tóku þátt í þeim.

View this post on Instagram

.

A post shared by Katrín Tanja Davíðsdóttir (@katrintanja) on Jun 11, 2020 at 12:54pm PDT

View this post on Instagram

.

A post shared by Katrín Tanja Davíðsdóttir (@katrintanja) on Jun 7, 2020 at 10:29am PDT




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert