Fjölmennt á samstöðufundi

Samstöðufundur á Austurvelli vegna bágrar stöðu erlends verkafólks.
Samstöðufundur á Austurvelli vegna bágrar stöðu erlends verkafólks. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Margir voru saman komnir við Alþingishúsið í hádeginu til að sýna aðstandendum þeirra sem létust í brunanum við Bræðraborgarstíg í vikunni samkennd, og erlendu verkafólki á Íslandi samstöðu.

mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Boðað var til samstöðufundar við Alþingishúsið til að vekja athygli á bágri stöðu erlendra verkamanna á Íslandi. Meðal þeirra sem mættu á Austurvöll til að sýna samtöðu voru lögreglu- og slökkviliðsmenn, auk Dags B. Eggertssonar borgarstjóra.

mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Að loknum fundi verður gengið að húsinu við Bræðraborgarstíg þar sem þrír létust í eldsvoða síðastliðinn fimmtudag og mun fólki bjóðast að leggja blóm og rafmagnskerti við húsið til að minnast þeirra sem létust.

mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
Borgarstjóri var meðal þeirra sem sýndu samstöðu á Austurvelli í …
Borgarstjóri var meðal þeirra sem sýndu samstöðu á Austurvelli í dag. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
Dagur þakkaði slökkviliðinu fyrir starfið.
Dagur þakkaði slökkviliðinu fyrir starfið. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert