Hleðslustöð við hótel svarar kröfum gesta

Sveinn Hreiðar Jensson, hótelstjóri Hótel Klausturs.
Sveinn Hreiðar Jensson, hótelstjóri Hótel Klausturs. mbl.is/Sigurður Bogi

„Kröfur gesta sem til okkar koma verða sífellt meiri. Okkur er metnaðarmál að mæta þeim en einnig að leiða þróunina í því sem koma skal. Hleðsla fyrir rafbíla er líka eitt af því sem ferðaþjónustan í landinu þarf að geta boðið gestum sínum,“ segir Sveinn Heiðar Jensson, hótelstjóri á Hótel Klaustri á Kirkjubæjarklaustri.

Þar var í vikunni sett upp og tengd rafhleðslustöð sem tveir bílar í einu geta tengst. Hleðslan tekur fjórar klukkustundir og geta gestir hótelsins þá til dæmis sett bílinn í samband að kvöldi og tekið hann fullhlaðinn að morgni.

Í Vík í Mýrdal og á Kirkjubæjarlaustri eru hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla. Mikilvægt var hins vegar að bæta aðgengi að rafhleðslum við hótel, segir Sveinn Heiðar. Þegar auglýst var eftir umsóknum úr Orkusjóði vegna innviðaverkefna sendu forsvarsmenn Hótels Klausturs umsókn og fengu jákvætt svar. Hleðslustöðin er nú orðin klár og rafbílunum fjölgar, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert