Í gær greindist erlendur ferðamaður sem hafði átt leið um Norðurland með staðfest smit COVID-19. Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá þessu.
Maðurinn var á ferðalagi með fjölskyldu sinni og er nú í einangrun á Akureyri. Fjölskylda hans er í sóttkví.
Á þessari stundu hefur lögreglan ekki frekari upplýsingar um ferðir mannsins.
Lögreglan á Norðurlandi ítrekar fyrir fólki að halda uppi virkum smitvörnum, þvo og spritta hendur, halda tveggja metra fjarlægð og forðast mannmergð.
Uppfært: