Tveir á sjúkrahús eftir líkamsárásir

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Jón Pétur

Þrjár líkamsárásir komu á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan 17 í gær þangað til fimm í morgun.

Þolendur hlutu andlits- og höfuðáverka og voru tveir þeirra fluttir með sjúkrabíl á bráðamóttökuna í Fossvogi. Ofbeldismennirnir voru farnir af vettvangi áður en lögregla kom á staðinn.

Tvær áttu sér stað við skemmtistaði og ein við verslun í austurborginni.

Einnig voru nokkur önnur mál vegna slagsmála og óláta en þau voru yfirstaðin er lögregla kom á staðinn og líklega verða ekki eftirmál af þeim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert