Umferðartafir á Hellisheiði vegna slyss

Í vefmyndavél Vegagerðarinnar má sjá bílaröðina sem myndast hefur við …
Í vefmyndavél Vegagerðarinnar má sjá bílaröðina sem myndast hefur við slysstað. Skjáskot/Vegagerðin

Hellisheiði var lokað til austurs eftir umferðarslys í Kömbunum, rétt ofan við Hveragerði, á fjórða tímanum. Löng bílaröð myndaðist við slysstað en aðgerðum er nú lokið og umferð gengur með venjulegum hætti, að því er sjá má á vef Vegagerðarinnar.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi fipaðist ökumanni bifhjóls í beygjunni og var hann fluttur á slysadeild til aðhlynningar, en ekki er talið að honum hafi orðið meint af.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert