Fríhöfnin sagði upp 62 starfsmönnum

Fólk á ferli í Fríhöfninni.
Fólk á ferli í Fríhöfninni. mbl.is/Eggert

Fríhöfnin ehf., dótturfélag Isavia, sagði upp 62 starfsmönnum í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Í morgun greindi forstjóri Vinnumálastofnunar frá því að um 60 starfsmenn hafi lent í hópuppsögn. 

Í tilkynningu Fríhafnarinnar segir að síðan áhrifa faraldurs kórónuveirunnar fór að gæta á Íslandi hafi stöðugildum hjá fyrirtækinu fækkað um tæp 60% og hefur verið gripið til ýmissa annarra hagræðingaraðgerða sem snerta öll svið Fríhafnarinnar.

„Því miður er staðan þannig að fækkun starfsfólks er óhjákvæmileg,“ segir Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, í tilkynningunni.

„Útlit er fyrir að ferðamenn sem koma til landsins verði afar fáir næstu misserin og erfitt að spá fyrir um hvenær fer að horfa til betri vegar. Við hjá Fríhöfninni höfum gripið til ýmissa hagræðingaraðgerða frá því heimsfaraldurinn hófst en því miður er staðan og útlitið verra en spáð var á fyrstu stigum.“

Þorgerður segir að mikil óvissa sé fram undan og staðan verði endurskoðuð reglulega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert