Fjórar flugferðir Icelandair eru á áætlun í dag en 18 er aflýst; níu brottförum og jafnmörgum ferðum frá landinu. Áður hefur komið fram að með þessu sé flugfélagið að bregðast við breyttum sóttvarnareglum á landamærunum.
Ein flugvél Icelandair fór frá Íslandi í dag, til London. Á áætlun er flug til Boston síðdegis á vegum Icelandair.
Um hádegi eru áætluð tvö flug; til London og Kaupmannahafnar. Flugvélar Icelandair fljúga til landsins frá sömu borgum.
Ferðir annarra flugvélaga, SAS, Wizz Air, EasyJet og Transavia eru á áætlun, samkvæmt vef Keflavíkurflugvallar.