Hafi forðað um 500 konum frá því að deyja

Höfundarnir taka ekki fram um hvaða staðhæfingar eða fjölmiðla er …
Höfundarnir taka ekki fram um hvaða staðhæfingar eða fjölmiðla er að ræða. mbl.is/Árni Sæberg

Birst hafa í fjölmiðlum rangar staðhæfingar um skort á gæðaeftirliti í leitarstarfi Krabbameinsfélagsins. Þetta er fullyrt í nýrri færslu á vef félagsins, þar sem segir að Ísland sé í hópi þeirra landa sem hafi lægsta dánartíðni af völdum leghálskrabbameins, eða minna en tvö dauðsföll á ári á hverjar hundrað þúsund konur.

Undir færsluna rita Laufey Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri krabbameinsskrár félagsins og klínískur prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, Jóhanna Eyrún Torfadóttir næringar- og lýðheilsufræðingur hjá krabbameinsskránni og aðjúnkt við læknadeild Háskóla Íslands, og Helgi Birgisson yfirlæknir krabbameinsskrárinnar.

Þau taka þó ekki nánar fram um hvaða staðhæfingar eða fjölmiðla er að ræða.

Staðhæfingar í fjölmiðlum séu á skjön við staðreyndir

„Undanfarna daga hefur snörp umræða átt sér stað varðandi starfsemi Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins, í kjölfar mannlegra mistaka við úrlestur úr niðurstöðum frumustroks í leghálskrabbameinsleit.

Í allri heilbrigðisþjónustu verða mannleg mistök. Það sker í hjartað þegar greint er frá slíkum mistökum og við finnum til sterkrar samkenndar með þeim sem mistökin bitna á og einnig þeim sem verða fyrir því að gera mistökin,“ skrifa höfundarnir.

„En í kjölfarið af hinum sorglegu mistökum birtust nú í fjölmiðlum rangar staðhæfingar um skort á gæðaeftirliti í leitarstarfinu. Þær eru mjög á skjön við staðreyndir málsins, eins og sést best þegar Ísland er borið saman við önnur lönd varðandi árangur leghálskrabbameinsskimunar, sem mældur er í dánartíðni og nýgengi leghálskrabbameins þ.e. fjölda þeirra sem deyja og greinast á hverju ári.“

Nýgengið þrefalt hærra árið 1964

Höfundarnir benda á að félagið hafi áætlað að starf leitarstöðvar félagsins hafi forðað um 500 konum á Íslandi frá því að deyja af völdum leghálskrabbameins.

„Þetta er reiknað út frá samanburði á dánartölum áranna 1972-2018 við framreiknaðar dánartölur sömu ára, miðað við óbreytta tíðni áranna 1967-1971 og tekið tillit til breytinga í fjölda og aldri kvenna.“

Nýgengi á Íslandi sé nú 8,6 tilfelli á hverjar 100.000 konur, aðeins lægra en í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, á meðan Finnland hafu lægsta nýgengið af Norðurlöndunum.

„Þegar leitin hófst, árið 1964, var nýgengið á Íslandi þrefalt hærra en nú og var þá í örum vexti vegna fjölgunar HPV-smita, en HPV-veirusýkingar valda leghálskrabbameini. Árangursrík skimun leiðir til langtíma lækkunar á nýgengi leghálskrabbameins, því þar eru forstigsbreytingar greindar og fjarlægðar áður en þær geta þróast yfir í krabbamein. Bólusetning gegn HPV-veirum lækkar einnig nýgengið, en slík bólusetning hófst á Íslandi árið 2011.“

Þá vísa höfundarnir til þess að árið 2018 hafi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin sett sér það framtíðarmarkmið að útrýma leghálskrabbameini sem lýðheilsuvandamáli. Markmiðið sé að ná nýgenginu niður fyrir fjögur tilfelli á hverjar 100.000 konur í öllum löndum á næstu áratugum.

„Þess misskilnings hefur gætt að Ísland sé ekki að standa sig, þar sem við höfum ekki náð þessu viðmiði. En í dag hefur ennþá ekkert land með virka og lýðgrundaða krabbameinsskráningu náð svo lágu nýgengi til lengri tíma þótt Finnland sé býsna nálægt því. Þetta gæti samt tekist á næstu áratugum með aukinni beitingu HPV-mælinga og fyrir tilstilli bóluefna sem ná til margra HPV-veirustofna.“

Glæsilegur árangur leitarstöðvarinnar

Höfundarnir halda áfram:

„Ástralir byrjuðu snemma að bólusetja mun víðtækari hópa, bæði varðandi aldur og kyn, en flestar aðrar þjóðir og telja þeir mögulegt að geta orðið fyrstir þjóða til að ná nýgenginu varanlega niður í 4 af 100.000, og að það gæti jafnvel gerst fyrir árið 2035.

Vitað er að nánast engar skimanir hafa 100% næmi, sem þýðir að nokkrar konur á hverju ári fá falskt neikvæð svör varðandi forstigsbreytingar og gildir þetta í öllum löndum. Næmið hefur aukist undanfarin ár á frumurannsóknarstofu leitarstöðvarinnar eins og fram kemur í reglubundnu árlegu gæðaeftirliti. Má annars vegar rekja það til HPV-mælinga sem gerðar eru á afbrigðilegum og ófullnægjandi leghálssýnum og hins vegar til þess að í byrjun árs 2019 var tekið í notkun tæki sem greinir afbrigðilegar frumur á rafrænan hátt, en það ár voru 70% leghálssýna skoðuð með tækinu.“

Að lokum segja þeir að „hinn glæsilega árangur“ leitarstöðvarinnar megi þakka óeigingjörnu hugsjónastarfi, ekki eingöngu félagsins sem stofnsetti leitina árið 1964 heldur einnig allra þeirra sem hafa unnið starfið í áranna rás, hvort heldur séu lífeindafræðingar, læknar, hjúkrunarfræðingar eða aðrir.

„Þar hefur alla tíð verið unnið af einurð og fagmennsku eins og árangurinn staðfestir. Þessu fólki ber að þakka sem og öllum konunum sem hafa mætt reglulega í skimun síðustu áratugina. Til að halda áfram þeim góða árangri sem Ísland hefur náð í lækkaðri tíðni krabbameina í leghálsi er mikilvægt að konur mæti í skimun á þriggja ára fresti frá 23 ára aldri.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert