Tveir starfsmenn íbúðakjarna fyrir fatlað fólk í Reykjavík hafa greinst með Covid-19. Gripið hefur verið til nauðsynlegra aðgerða með það að leiðarljósi að hefta frekara smit, án þess að skerða þjónustu við íbúa.
„Covid-smit hafa komið upp hjá tveimur starfsmönnum íbúðakjarna fyrir fatlað fólk í Breiðholti og Grafarvogi. Báðir starfa þeir náið með einstaklingum sem þurfa sólarhringsþjónustu.
Aðgerðaáætlun vegna smitanna hefur verið unnin í nánu samstarfi við smitrakningarteymi Almannavarna og Embætti landlæknis en neyðarstjórn velferðarsviðs hélt samráðsfund í morgun þar sem línur voru lagðar um næstu skref,“ segir á vef Reykjavíkurborgar.
Tekið er fram að tryggt verði að íbúar fái áfram þá þjónustu og stuðning sem þeir þurfi á að halda við sitt daglega líf. Íbúar kjarnanna tveggja búi allir í eigin íbúðum og fái því alla nauðsynlega þjónustu inn á sín heimili.
„Í íbúðakjarnanum í Grafarvogi þurfa sex starfsmenn að fara í sóttkví og um 20 í Breiðholti. Unnið er að því að manna vaktirnar með öðru starfsfólki velferðarsviðs. Báðir íbúarnir sem fengu þjónustu viðkomandi starfsmanna eru komnir í sóttkví. Þeir fara í sýnatöku í dag og fylgst verður náið með líðan þeirra.
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar rekur um 70 heimili og dvalarstaði þar sem haldið er úti órofinni þjónustu allan sólarhringinn,“ segir ennfremur.