Eltist við slóðir sem eru sögulegar

Leiðsögumaðurinn Bjarni glaður á góðum degi í sumar í hestaferð. …
Leiðsögumaðurinn Bjarni glaður á góðum degi í sumar í hestaferð. Hér leiðir hann hópinn upp Gönguskarð, á leið þeirra í Flateyjardal við Skjálfanda. Ljósmynd/Einar Sæmundsen

„Þetta kemur nú bara til af ævintýraþrá og löngun eftir nýjum áskorunum, en ég fór fyrir fjórum árum ásamt hópi af frábæru fólki í hestaferð hringinn í kringum Vatnajökul. Sennilega var það ein lengsta hestaferð sem farin hefur verið með skipulagðan hóp af erlendum ferðamönnum, þúsund kílómetra reið á 24 dögum. Í þeirri ferð fórum við austurhlutann af Íslandi og þar sem mig hefur alltaf langað til að ríða um Vesturland og Vestfirði, þá ákvað ég að teikna upp þessa nýju risaferð í vor ekki síst til að hressa við andrúmsloftið og sína smá lífsmark og bjartsýni í allri þokunni sem umlukti ferðaþjónustuna í vor. Við ætlum að fara þessa mögnuðu ferð sumarið 2021 og loka þannig hringnum í kringum landið,“ segir Bjarni Páll Vilhjálmsson sem ásamt fjölskyldu sinni er með mikla hestaferðaútgerð á bænum Saltvík í S-Þingeyjarsýslu.

„Við gefum okkur um 50 daga til að ríða þessa leið sem er um 1.500 kílómetrar og mikil útgerð og skipulag sem fylgir framkvæmdinni. Þetta verður ákveðin prófraun á bæði hesta og fólk. Ég er nokkuð viss um að ekki hefur áður verið farinn svona mikill leiðangur á Íslandi með ferðamenn á hestum.

Við verðum með 60 til 70 hesta og þeir verða allir sérvaldir og þrautþjálfaðir og mjög reyndir í langferðum. Það er mikið atriði í svona ferð að vera með öfluga fullorðna hesta sem hafa margra ára reynslu af hestaferðum.Þessi íslenski ferðahestur er í raun sérstök gerð af hesti, þegar hann er kominn í sitt besta stand, tíu til tólf vetra og búinn að hlaupa um hálendið og kynnast allskyns torfærum, veðráttu og aðstæðum. Slíkir hestar þurfa að vera fótvissir, sterkir, traustir og kjarkaðir í fjölbreyttu landslagi og slíkt kemur fyrst og fremst með reynslu og aldri hestanna.“

Hringferð 2021 Hér má sjá hvar reiðleiðin mun liggja um …
Hringferð 2021 Hér má sjá hvar reiðleiðin mun liggja um landið Kort/mbl.is

Spenntur fyrir Vestfjörðum

Bjarni segir að þau skipti ferðinni upp í sex hluta og fólk geti þá keypt sig inn í ferðina í staka áfanga.

„Við gerum í raun ráð fyrir að það sé að mestu nýtt fólk í hverjum hluta ferðarinnar. Við verðum með tólf til fimmtán manns í einu í hverjum legg. Í heildina munu því um 100 reiðmenn taka þátt í ævintýrinu að leiðsögumönnum meðtöldum,“ segir Bjarni og bætir við að reynslan úr fyrri langferðum komi sér vel við skipulagninguna og ekki síst reynslan af stóru ferðinni um Vatnajökul þar sem sumar dagleiðir urðu mun lengri en til stóð af ýmsum ástæðum, og álagið varð þvi mikið á hesta og menn þó að allt hafi gengið vel og allir komið heilir heim.

„Í þessari ferð förum við heldur hægar yfir og gefum hestunum góðan hvíldartíma milli leggja. Fyrsti áfanginn er 9 daga ferð frá Saltvík yfir hálendið um Sprengisand. Að því loknu hvílum við hestana í uppsveitum Árnessýslu. Leggur tvö er léttari sveitaferð í byggð, riðið um Laugardalinn og Þingvöll og við endum í uppsveitum Borgarfjarðar. Næst kemur Vesturlandið þar sem við ríðum m.a. um Snæfellsnesið og Löngufjörur og endum í Búðardal. Þar á eftir tekur við heljarinnar leiðangur á Vestfirðina sem ég er mjög spenntur fyrir enda aldrei riðið þar um áður og reyndar ekki heldur Vesturlandið. Svo þetta svæði er nýtt fyrir mér og ákveðin áskorun. Vestfjarðaleggurinn verður tólf daga ferð, lengsta ferðin innan þessarar hringferðar og nú þegar uppselt í þann hluta,“ segir Bjarni og bætir við að allt séu það erlendir ferðamenn sem hafi bókað sig í þá ferð.

„Allnokkrir góðir félagar sem hafa riðið með mér í gegnum tíðina á hestaferðum ætla að slást í hópinn einhverja daga og hjálpa til og hugsanlega kemur íslenskur kvennahópur inn í lokaáfangann.“

Ítarlegra viðtal er í Morgunblaðinu í dag, 17. september.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert