„Sendir aftur heim til að deyja“

Heilbrigðisstarfsfólk önnum kafið á Landspítalanum.
Heilbrigðisstarfsfólk önnum kafið á Landspítalanum. Ljósmynd/Landspítalinn

Þórarinn Guðnason hjartalæknir gagnrýnir þá sem hafa talað gegn sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda og bendir á ástandið á Ítalíu þegar það var sem verst í vor vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.  

„Mikil er ábyrgð þeirra sem leggja til óheftari smit í landinu og tala gegn okkar bestu sérfræðingum í smitvörnum, sem nú eiga undir högg að sækja í þjóðfélagsumræðu og hjá ákveðnum hópum,“ skrifar Þórarinn á facebooksíðu sína.

Hann segist hafa fylgst með á Twitter í gegnum ítalska kollega þegar ástandið á Ítalíu var sem verst og segir orð á borð við náttúruhamfarir og stríðsástand ekki ná að lýsa ástandinu nógu vel.

„Læknar sem höfðu minna að gera vegna ástandsins eins og meinafræðingar og bæklunarlæknar voru t.d. sendir út á bílaplan og látnir forgangsraða sjúklingum þar í bílum sínum. Spurningarnar sem þeir spurðu sjúklinga voru bara tvær: Hvað ertu gamall og ertu með undirliggjandi sjúkdóma?

Ef svarið var eldri en 60 ára eða já við því að hafa undirliggjandi sjúkdóm var hlutverk þessara lækna að snúa þeim einstaklingum við og vísa þeim frá yfirfullum spítalanum. Þeir voru sendir aftur heim til að deyja eða vona það besta,“ skrifar hann og kveðst vona að Íslendingar endi ekki þarna.

„En ef ekki er hlustað á sérfræðingana okkar og ef álit þeirra og leiðbeiningar eru sveigð til eða hunsuð er það í alvörunni möguleg útkoma. Og það getur gerst á nokkrum dögum vegna veldisvaxtar smitanna.“

Hann bætir við: „Og að lokum þá getum við verið að tala um að það sé afi þinn, amma, faðir eða móðir eða jafnvel langveiki litli bróðir þinn eða frændi sem verður snúið við á bílaplani Landspítala í Fossvogi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert