Ræddu um loftslagsgjöld á landamærum

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók í dag þátt í fundi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um sjálfbæra þróun.

Þar var rætt um hugmyndir um loftslagsgjöld á landamærum vegna innflutnings frá svæðum sem leggja ekki á kolefnisgjöld eða losunarkvóta og nýtingu gjaldanna í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Hugmyndir um slík gjöld eru til skoðunar hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, að því er segir í tilkynningu.

Fram kom í máli ráðherra að brýnast væri að fjalla um umhverfismál í stóru samhengi og hvernig bregðast ætti við loftslagsvandanum. Ljóst væri að loftslagsgjöld á landamærum væru nauðsyn í áliðnaði. „Ísland er nokkuð stórt á heimsmarkaði þegar kemur að framleiðslu áls. Í álframleiðslu hér á landi eru nýttir hreinir orkugjafar en þrátt fyrir marga alþjóðlega fundi og áhuga á grænum orkugjöfum er almennt ekki greitt yfirverð fyrir slíkar grænar afurðir,“ sagði ráðherra, að því er segir í tilkynningunni.

Rætt hefur verið um að nýta gjöld vegna kolefnisnotkunar í baráttuna gegn loftslagsvandanum í þróunarríkjum. Bjarni sagðist telja að til þess að samstaða næðist um slíkt þyrfti að verja umtalsverðum hluta tekna sem kæmu af slíkum gjöldum í aðgerðir í loftslagsmálum heimafyrir. Heppilegra væri að nýta þá innviði sem til staðar væru, svo sem Græna loftslagssjóðinn í stað þess að stofna nýja sem hefðu sama markmið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert