Alls greindust 86 smit innanlands í gær. Af þeim voru 72% í sóttkví en 24 einstaklingar voru utan sóttkvíar eða 28%. Nú eru 1.062 í einangrun á Íslandi en voru 1.048 í gær. Á spítala eru 58 sjúklingar með kórónuveiruna og af þeim er einn á gjörgæslu.
Við landamærin voru greind 10 virk smit í gær og eitt við seinni skimun. Tíu bíða mótefnamælingar.
Alls voru 2.632 sýni tekin innanlands í gær og 420 við landamærin. Ekki hafa verið tekin svo mörg sýni á einum degi frá 12. október.
1.667 eru í sóttkví og 1.548 eru í skimunarsóttkví en í þeim hópi eru þeir sem þurfa að fara í sóttkví á milli skimana á landamærunum.
59 smit voru greind við einkennasýnatöku í gær og 26 við sóttkvíar- og handahófsskimun. Eitt smit fannst við skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.
11 börn yngri en eins árs eru í einangrun, 27 börn á aldrinum 1-5 ára eru í einangrun og 96 börn 6-12 ára. 55 börn á aldrinum 13-17 ára eru með Covid-19 í dag þannig að alls eru 189 börn smituð af kórónuveirunni í dag.
Í aldurshópnum 18-29 ára eru 277 smit, á fertugsaldri eru smitin nú 155 talsins en í aldurshópnum 40-49 ára eru þau 142. Á sextugsaldri eru 113 með Covid og á sjötugsaldri eru þeir 84 talsins. 45 eru með Covid á aldrinum 70-79 ára, 37 á níræðisaldri og 20 einstaklingar yfir nírætt eru með veiruna að því er fram kemur á covid.is.
Á höfuðborgarsvæðinu er 847 í einangrun og 1.179 eru í sóttkví. Á Suðurnesjum eru 56 smitaðir en 108 í sóttkví. Á Suðurlandi eru 64 smit en 124 í sóttkví. Á Norðurlandi eystra er 51 smit og 135 í sóttkví. Á Norðvesturlandi eru tvö smit og 11 í sóttkví. Á Austurlandi er ekkert smit en þar er einn í sóttkví. Á Vestfjörðum eru 12 smit og 19 í sóttkví og á Vesturlandi er 21 smit og 56 í sóttkví. Óstaðsettir í hús eru 9 smitaðir og 34 í sóttkví.
Miðað við 100 þúsund íbúa eru 221,4 smit innanlands síðustu tvær vikurnar en 27,5 á landamærunum á sama tímabili.