Krefst frekara samtals að fella lögin niður

Stjórn Félags viðskipta- og hagfræðinga auk framkvæmdastjóra. Frá vinstri: Telma …
Stjórn Félags viðskipta- og hagfræðinga auk framkvæmdastjóra. Frá vinstri: Telma Eir Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri, Lilja Gylfadóttir, Hálfdán Steinþórsson, Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, Kristjana Sunna Aradóttir, Herdís Helga Arnalds, Brynja Jónbjarnardóttir, Tryggvi Másson, Gylfi Ólafsson, Lára Hrafnsdóttir og Þórarinn Hjálmarsson. Ljósmynd/Aðsend

Félag viðskipta- og hagfræðinga tekur undir að framkvæma þurfi heildarendurskoðun á löggildingu starfsgreina á Íslandi. Ekkert bendir aftur á móti til þess að drög að niðurfellingu laga um rétt manna til að kalla sig viðskiptafræðinga eða hagfræðinga séu hluti af slíkri vegferð.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Félagi viðskipta- og hagfræðinga að loknum stjórnarfundi sem var haldinn í gær.

Tilefni fundarins var að fyrr í vikunni birti ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra drög að lagabreytingum á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks, þar sem meðal annars er kveðið á um brottfall laga um verndun starfsheita viðskipta- og hagfræðinga. Drögin voru lögð fram eftir birtingu samkeppnismats Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) á íslenskri ferðaþjónustu og byggingariðnaði, þar sem meðal annarra tillagna til úrbóta var endurskoðun á lögverndun starfsgreina.

Mennuntun gefur starfsheitum gildi sitt

„Við heildarendurskoðun á löggildingu starfsheita væri sjálfsagt að líta á stöðu viðskipta- og hagfræðinga í því samhengi, og meta hvort tilefni sé til að vernda rétt fólks til að kalla sig þeim titlum. Að því sögðu er það ekki réttur fólks til að kalla sig viðskipta- og hagfræðinga sem gefur starfsheitunum gildi sitt. Heldur er það menntunin sem liggur að baki fræðigráðunnar og þekkingin og færnin sem viðskipta- og hagfræðingarnir tileinka sér,“ segir í yfirlýsingunni.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Á þeim næstum 40 árum sem lög þessi hafa verið í gildi hefur íslenskt samfélag gjörbreyst og sömuleiðis þau störf sem viðskipta- og hagfræðingar sinna. Það er því ekki óeðlilegt að lögin séu tekin til endurskoðunar, en að fella niður lögin í heild sinni krefst frekari yfirlegu og samtals við félagsmenn að mati félagsins.“

Funda með ráðherra

Fram kemur að félagsmenn hafi margir sterka skoðun á frumvarpinu og þykir stjórninni eðlilegast að gefa þeim tækifæri á að láta sína skoðun í ljós. Fyrr í vikunni var sendur tölvupóstur á félagsmenn og óskað eftir þeirra athugasemdum. Þá hefur stjórn óskað eftir fundi með Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ráðherra málaflokksins, til þess að ræða málið frekar, og hefur hún orðið við þeirri beiðni.

Að loknu frekara samtali við félagsmenn og ráðherra mun stjórnin senda frá sér umsögn um málið á samráðsgátt stjórnvalda.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert