Flýgur til ellefu áfangastaða um jólin

Í Evrópu stefnir félagið að því að fljúga til og …
Í Evrópu stefnir félagið að því að fljúga til og frá Kaupmannahöfn, Ósló, Stokkhólmi, Amsterdam, London, París, Frankfurt og Berlín. Í Norður-Ameríku stefnir félagið á flug til og frá Boston, New York og Seattle. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jólaáætlun Icelandair er komin í sölu og miðast við tímabilið 16. desember til 10. janúar 2021. Félagið stefnir á að fljúga til ellefu áfangastaða um hátíðirnar en tíðni verður aukin miðað við það sem hefur verið síðustu vikur.

Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að það sé vegna þess að margir Íslendingar sem búi erlendis kjósi að koma heim yfir jól og áramót.

Í ljósi fyrirkomulags á landamærum hafa sóttvarnayfirvöld mælt með að fólk komi heim í síðasta lagi 18. desember til þess að eiga möguleika á að vera laust úr sóttkví á aðfangadag.

Í Evrópu stefnir félagið að því að fljúga til og frá Kaupmannahöfn, Ósló, Stokkhólmi, Amsterdam, London, París, Frankfurt og Berlín. Í Norður-Ameríku stefnir félagið á flug til og frá Boston, New York og Seattle.

„Icelandair mun leggja allt kapp á að koma farþegum á áfangastað fyrir jól og áramót. Aðstæður eru þó síbreytilegar á mörkuðum félagsins og fari svo að einstaka flug verði fellt niður verður það tilkynnt með góðum fyrirvara og Icelandair mun leysa úr málum farþega,“ segir í tilkynningu frá Icelandair.

Við finnum fyrir auknum áhuga á flugi yfir hátíðirnar, fyrst og fremst frá Íslendingum sem vilja komast heim og verja jólum og áramótum með sínum nánustu. Það er mikilvægt hlutverk okkar að tryggja góðar samgöngur til og frá landinu og við ætlum að mæta þessari eftirspurn með því að bjóða fleiri áfangastaði og hærri tíðni en við höfum getað boðið upp á undanfarnar vikur. Fari svo að einhverjar breytingar verði á flugáætluninni munum við gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að koma farþegum okkar á sinn áfangastað,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert