Hækkun er með miklum ólíkindum

mbl.is/Árni Torfason

Hækkun á verði búvara leiðir af þeim áformum landbúnaðarráðherra að hverfa tímabundið aftur til eldra fyrirkomulags á útboði tollkvóta fyrir búvörur. Þetta er skoðun Félags atvinnurekenda, sem mótmælir þeirri ráðstöfun sem er í undirbúningi.

Fyrsta útboðið á tollkvótum samkvæmt tollasamningi við ESB með nýrri aðferð, svokölluðu jafnvægisútboði, var síðastliðið vor. Samkvæmt því er gjald á hvert kíló nautakjöts í jafnvægisútboði 200 kr., en 331 kr. í útboði með fyrri aðferð. Gjald á hvert kíló af þurrkaðri og reyktri skinku með aðferðinni sem nú er aftur tekin upp er 200 kr. og fer úr 5 kr. eins og gilti um skamman tíma.

Frumvarp um tollabreytingar hefur verið lagt fram og í greinargerð er tilgangurinn sagður vörn fyrir íslenskan landbúnað, sem hafi fengið á sig högg af völdum Covid, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert