Fékk nífaldan hæsta vinning hjá HHÍ

Heppinn miðaeigandi hjá Happdrætti Háskóla Íslands fékk nífaldan hæsta vinning í fyrsta happdrætti ársins og fær 45 skattfrjálsar milljónir í sinn hlut, að því er fram kemur í tilkynningu frá Happdrættinu.

Þá gekk milljónaveltan út og fær sá heppni miðaeigandi 10 milljónir króna í vinning. Auk þess fengu tveir trompmiðaeigendur 2,5 milljónir hvor og sjö fengu eina milljón króna, en alls skipta 3.427 vinningshafar með sér rúmum 166 milljónum króna.

Happdrætti Háskólans óskar vinningshöfum innilega til hamingju með vinninga sína og óskar þeim sem og landsmönnum gleðilegs nýs árs og þakkar stuðninginn.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert