Athugun skriðusérfræðinga á stækkunar sprungu sem myndaðist vegna skriðufalla á Seyðisfirði þann 18. desember er lokið. Ester Hlíðar Jenssen, skriðusérfræðingur hjá Veðurstofunni, segir að mælitæki hafi ekki sýnt neina hreyfingu á fleka sem óttast er að fari af stað. Hins vegar sýndu myndir úr vefmyndavél að sprungan hafði stækkað.
„Speglamælingar okkar sýndu enga breytingu en sjáum hins vegar á ljósmyndum úr vefmyndavél að sprungan hefur lengst. Hins vegar hefur flekinn sem fylgst er með ekki hreyfst,“ segir Esther.
Hún segir að drónamyndir muni skýra betur hversu mikið sprungan hefur lengst. Vinna við hreinsunarstarf var stöðvuð á svæðinu undir skriðufallinu á meðan athugun fór fram.
Segir Esther ennfremur að nú sé heimilt sé að fara inn á svæðið sem var rýmt í dag. Náði hún eingöngu til verktaka sem sinna hreinsunarstarfinu. Hús á svæðinu undir skriðuföllunum sem féllu í desember eru áfram mannlaus.
Uppfært: 16:32
Lögreglan á Austurlandi hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna stöðu mála á Seyðisfirði og Eskifirði.
Seyðisfjörður:
„Af öryggisástæðum var hreinsunarvinnu innan áhrifasvæðis skriðunnar sem féll 18. desember stöðvuð rétt fyrir hádegi í dag. Það var gert eftir að tilkynning barst um að sprunga í skriðusárinu hefði stækkað. Auk þess ákvaðu stjórnendur síldarvinnslunnar á Seyðisfirði að stöðva vinnslu. Eftir yfirferð ofanflóðavaktar Veðurstofu Íslands, á fjarlægðarmælingum á speglum, var ljóst að ekki var um hreyfingar á jarðlögum að ræða en við vettvangskönnun var ljóst að hrunið hafði úr börmum sprungunnar og hún orðið greinilegri. Ekki var því talin frekari hætta á skriðuföllum út frá þessum athugunum.
Talsverðri úrkomu er spáð á Seyðisfirði eftir miðnætti aðfaranótt laugardags. Dregur úr úrkomuákefð eftir kl. 15 síðdegis á laugardag. Spáð uppsafnaðri úrkoma á þeim tíma, um 50 mm. Byrjar mögulega sem slydda fyrsta klukkutímann. Hlýnar heldur en megnið af tímanum verður slydda yfir 200 m og snjókoma yfir 300 m. Hlýnar svo eftir hádegi á laugardag og fer snjólína upp í 800-900 m. Áfram dálítil væta seinnipartinn á laugardag og á sunnudag, um 15 mm uppsafnað er spáð á þeim tíma.
Vegna úrkomunnar á laugardag kann að koma til frekari rýminga á Seyðisfirði. Staðan verður endurmetin á morgun og kynnt,“ segir í tilkynningu.
Eskifjörður:
„Úrkoman byrjar um miðnætti seint á föstudagskvöld og dregur úr úrkomuákhefð um kl. 14 á laugardag. Spáð uppsöfnuð úrkoma um 35 mm á þessum tíma. Heldur hlýrra en á Seyðisfirði, slyddu- og snjólína um 50-100 m hærri á Eskifirði. Áframhaldandi uppsöfnuð úrkoma frá seinnipartinum á laugardegi fram á sunnudagskvöld eru um 10 mm í spám,“ segir í tilkynningu.