Óvissustig vegna snjóflóðahættu

Mynd tekin af snjóflóði sem fell á Ólafsfjarðarveg á milli …
Mynd tekin af snjóflóði sem fell á Ólafsfjarðarveg á milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur fyrir nokkrum árum. Af Facebook síðu lögreglunnar á Akureyri

Veðurstofa Íslands lýsir yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi en talsverð úrkoma hefur mælst á annesjum þar síðan í gærmorgun.

Síðdegis í gær féll snjóflóð yfir Ólafsfjarðarveg og lokaði honum en í dag sáust talsvert stór snjóflóð úr Ósbrekkufjalli í Ólafsfirði og féll eitt þeirra fram í sjó. 

Frétt mbl.is

Siglufjarðarvegur og Ólafsfjarðarvegur milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar eru lokaðir vegna veðurs.

Spár gera ráð fyrir stífum norðlægum áttum með snjókomu og éljum fram yfir helgi.

Ekki er talin hætta í byggð sem stendur en viðvörun hefur verið gefin út fyrir hesthúsahverfi í Ólafsfirði undir Ósbrekkufjalli, að því er fram kemur á facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert