Árekstur á Sæbraut

Einn var fluttur á Landspítala.
Einn var fluttur á Landspítala. Ljósmynd/Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Einn var fluttur með sjúkrabíl á Landspítala eftir tveggja bíla árekstur á mótum Sæbrautar og Skeiðarvogs í hádeginu.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins dró kranabíll báða bíla af vettvangi.

Ekki er talið að sá sem var fluttur á spítala sé alvarlega slasaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert