Kennarar vísa deilu til ríkissáttasemjara

Frá framhaldsskóla.
Frá framhaldsskóla. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kjaraviðræður Félags framhaldsskólakennara (FF) og Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS) annars vegar og samninganefndar ríkisins hins vegar hafa nú staðið frá því í september. 

Í frétt á vef Kennarasambandsins kemur fram að viðræðurnar hafi ekki þróast með þeim hætti sem vonast var til.

17. apríl á síðasta ári var skrifað undir stuttan samning til áramóta og því er félagsfólk KÍ í framhaldsskólum samningslaust frá og með 1. janúar sl. Í samningnum er ákvæði um vinnu sem samningsaðilar skyldu taka upp eigi síðar en 1. september 2020.

Markmið vinnunnar var sameiginleg skoðun launaþróunar í framhaldsskólum miðað við aðra samanburðarhópa opinberra starfsmanna. Leitað yrði leiða um úrbætur ef sú skoðun leiddi í ljós að það hallaði á félagsfólk KÍ.

Samninganefndir FF og FS eru sammála um að viðræður hafi ekki skilað ásættanlegum árangri og hafa því leitað til embættis ríkissáttasemjara um miðlun mála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert