280.000 manns boðin bólusetning

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

„Alls verður 280.000 einstaklingum á Íslandi boðin bólusetning, það er að segja öllum þeim sem eru 16 ára og eldri.“ Þetta kom fram í máli Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra á þingi þar sem hún flutti skýrslu um Covid-19-faraldurinn og horfurnar fram undan.

Hún sagði að bólusett væri með bóluefnum Pfizer, AstraZeneca og Moderna í hverri viku og að verkið gangi vel.

Gera má ráð fyr­ir að hægt verði að bólu­setja tæp­lega 190.000 ein­stak­linga hér á landi fyr­ir lok júní næst­kom­andi með áðurnefndum bóluefnum.

„Þetta eru þau bóluefni sem hafa fengið markaðsleyfi í Evrópu,“ sagði Svandís á þingi.

„Þar að auki má vænta bóluefna frá fleiri lyfjaframleiðendum á öðrum ársfjórðungi að því gefnu að þeim verði veitt umrætt leyfi,“ sagði Svandís.

Hún benti enn fremur á að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir vinni að gerð bólu­setn­ing­ar­da­ga­tals á grund­velli fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­inga um af­hend­ingu bólu­efna á næstu mánuðum.

Þar verða birt­ar upp­lýs­ing­ar um for­gangs­hópa og hvenær ein­stak­ling­ar í hverj­um hópi geta vænst þess að fá boð um bólu­setn­ingu. Þess­um upp­lýs­ing­um er fyrst og fremst ætlað að veita fólki gróf­ar upp­lýs­ing­ar um fram­vindu bólu­setn­inga gegn Covid-19 hér á landi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert