Jarðskjálfti 3,5 að stærð við Fagradalsfjall

Jarðvísindamenn að störfum á Reykjanesi í gær.
Jarðvísindamenn að störfum á Reykjanesi í gær. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jarðskjálfti 3,5 að stærð mældist klukkan 14.35 rétt norðan við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga. Tilkynningar hafa borist Veðurstofu Íslands um að skjálftinn hafi fundist í byggð, á Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu.

Er um að ræða stærsta skjálftann í hrinunni á skaganum síðan um klukkan hálf fjögur í nótt þegar skjálfti 3,5 að stærð mældist rétt norðan við Krýsuvík.  

Hrinan er enn í gangi en rúmlega 2500 jarðskjálftar hafa verið staðsettir með sjálvirka jarðskjálftamælikerfi Veðurstofu Íslands frá miðnætti.

Í gær, 24. fe­brú­ar, mæld­ust tveir jarðskjálft­ar yfir 5 að stærð. Sá stærri varð kl. 10:05 af stærð 5,7 og ann­ar kl. 10:30 af stærð 5. Klukk­an 12:37 varð svo skjálfti af stærð 4,8. Ell­efu jarðskjálft­ar yfir 4 að stærð hafa mælst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert